Fara í aðalinnihald

Nú er úti verður gott

Ég er ekki frá því að það sé loksins komið sumar og 17. júní í næstu viku. Verst að mér finnst alltaf sumarið vera hálfnað þegar 17. júní búinn og reyni að flýta mér að gera eitthvað. Sem betur fer er búið að vera nóg að gera í maí og júní þannig að ég hef nýtt það sem af er sumri og vetri vel. En bara ef þið hafið ekki tekið eftir því, þá er bongóblíða úti, sumarhátíð leikskólans (sem foreldrafélagið stendur fyrir) á fimmtudaginn og nóg að gerast.

Fór í smá leiðangur með einkasoninn að kíkja á tvíhjól. Hann vildi þó ekki fá tvíhjól, bara hjól með hjálparadekkjum, hahahah! Í þær tvær búðir sem ég fór voru bara til bleik stelpuhjól í hans stærð. Reyndar er hann á milli stærða þar sem hann er alltof langur en það er önnur saga. Hann var þó alveg sáttur við að fá bleikt hjól en móðir hans ákvaða að bíða í nokkur ár með það að láta hann ráða því og tekur stefnuna á fleiri búðir á morgun.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...