Fara í aðalinnihald

Kvebbi Lebbi

Já, ég er víst ennþá með kvef og síg uppí nös. Ég fór þó í vinnuna í dag og gekk það nú ágætlega þó að maður sé nú alltaf háflmáttlaus eftir svona veikindi. Enda er ég nokkuð þreytt núna. Hudleiðinlegt þetta kvef eða eins og Siggi segir. Kefið, það kemur bara allt í einu og svo ætlar það aldrei að fara aftur. Annars held ég að þessi vetur verði minnst sem Veikindaveturinn mikli, því ég held að ég hafi aldrei verið svona mikið frá vinnu áður. Mestalagi einu sinni á vetri. Enda varð maður jú þrítugur á árinu, já árin eru heldur betur farin að segja til sín. hehehhe.

Í hádeginu fórum við, heilbrigðistölfræðisvið, (fimm kerlingar) á Kaffibrennsluna og fengum okkur hádegisverð. Það var mjög fínt. Ágætt að komast aðeins út úr húsi. Ég er nefnilega aldrei á bíl þannig að ég tek mitt hádegi yfirleitt á kaffistofunni og kemst ekkert lengra en í Hagkaup. Þannig að þetta var ágætistilbreyting fyrir mig.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...