Byrjaði á ljósmyndanámskeiði í dag og það besta við það er að ég fæ það frítt í gegnum stéttarfélagið. Námskeiðið stóð frá 16:30-19:30 og ég var þokkalega þreytt eftir það sérstaklega andlega. Tekur á þegar maður er orðinn óvanur að vera í skóla, jæja bæði orðin eldri og svo var ég auðvitað að vinna allan daginn.
Í dag lærði ég um ljósop, hraða og white balance sem er notað til að stilla lithita. Einnig lærði ég um samspil ljósops, hraða og ISO. Hafði heyrt flest öll þessi hugtök áður en vantaði tengslin á milli. Vona að ég hafi lært eitthvað af því í dag. Á tvö skipti eftir á námskeiðinu sem verður næstu tvo þriðjudaga. Eftir þann tíma verð ég að sjálfsöguðu orðinn heimsklassa ljósmyndari eða svona næstum því.

Ummæli