Fór í þennan líka fína göngutúr í kvöld með nýstofnuðum gönguklúbb í vinnunni. Um 17% af vinnufélögunum mættu og það var sko engin rigning í kvöld heldur fínasta veður þannig að þeir sem mættu ekki misstu af miklu. Ætlunin er að labba vikulega og það var sko kraftganga og ég mátti hafa mig alla við að halda í við gönguforingjana. Bíð spennt eftir næsta miðvikudegi.
Svo fyrir þá sem ekki vissu.. það er komið haust!
Svo fyrir þá sem ekki vissu.. það er komið haust!
Ummæli