Fara í aðalinnihald

Jibbí

Svona smá til að toppa blöggið þennan mánuðinn þá eru hérna tvær færslur. Er bara svo ánægð með að vera búinn að skila skattframtalinu. Jibbí! Fékk auðvitað frest þar sem maður virðist alltaf vakna upp við vondan draum daginn sem á að skila skattframtalinu. Ha? Er komið að því eina ferðina enn? Jæja, best að fá frest og svo dregur maður það alveg þangað til að fresturinn er næstum runninn út. Minnispunktur fyrir næsta ár: Klára skattframtalið í byrjun mars!
Reyndar sýnist mér við fá lítið sem ekkert í vaxtabætur. Ég skulda ekki nóg en á þó lítið sem ekkert í íbúðinni minni (verðbætur síðasta árs búnar að hirða allt). Best að fara og kaupa sér dýrari íbúð, fáum við hvort sem er ekki niðurfellingu skulda?

Ummæli

Dolores Delgado sagði…
Athygli!!! Athygli!!! Athygli!!! Athygli!!!

Vantar þig einhvers konar lán ef Já samning minn herra Kresten Høglund sem hjálpa mér með lán bara nokkra viku er að baka, ég þarf bara að deila þessari umferð um heiminn til að láta fólk vita að það eru enn góðar hitaðar manneskjur í heiminum í dag. Ég tapaði í raun peningum til scammers á netinu allt vegna þess að ég var örvæntingarfullur fyrir láni. Þangað til ég sá athugasemd um hann, að hafa samband við hann ekki mistök en draumar koma í gegnum fyrir mig. Nú er ég hamingjusamur maður með fjölskyldunni. Hafðu samband við hann ef þú þarft eitthvert lán á
Netfang: findlending@hotmail.com

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...