Fara í aðalinnihald

Ammili

Til hamingju með afmælið Magga 06.07.06.

Systir hans Sigga á afmæli í dag, varð þrítug. Við fórum saman fjölskyldan á American Style eða stælinn eins og hann er stundum kallaður. Hún ætlar svo að halda uppá afmælið sitt enn betur um helgina.
Við vissum ekkert hvað við áttum að gefa henni og ég og sonur minn fórum á Laugaveginn fyrr í dag til að fá einhverjar hugmyndir. Kristófer var í essinu sínu og horfði á alla bílana sem keyrðu niður eina helstu götu Reykjavíkur og kallaði brrrri og ef bílinn var í stærra lagi doooóór brrrri. Endað með því að ég dró Sigga í Smáralindina og völdum gjöfina korter í sjö í kvöld í en við áttum að hittast á stælnum kl. sjö! Komum aðeins og seint en ekkert alltof seint. Við (ég, Siggi og Kristófer Óli) og bróðir hans Sigga gáfum henn silfurhálsmen með íslenskum náttúrusteini, ópal. Voða flottur.
Ég er svo mikið afmælisbarn að mér finnst alltaf svo gaman þegar einhver á afmæli og vildi helst gefa þeim allan heiminn. Verst að ég á ekki allan heiminn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?