Nóg að gera í jólaundirbúningnum og því minna um það að setjast fyrir framan tölvuna.
Í gær var ég í jólakortavinnubúðum. Fór til frænku minnar og við skrifuðum saman jólakort. Klukkan tíu var ég búinn að skrifa sjö jólakort og alvega að gefast upp. Ætlaði bara heim að sofa. Sem betur fer dreif frænka mín mig áfram og um tólf leitið var ég búinn að skrifa rúmlega þrjátíu jólakort (á ca. fimmtán stykki eftir) og kom heim kl. 00.30. Geri aðrir betur.
Skrapp svo í Smáralindina kl. 21.00 í kvöld til þess að kaupa litla jólagjöf fyrir jólagjafaleik á jólagleði í vinnunni á morgun. Bjóst við því að ég hefði Smáralindina svo til út af fyrir mig. Svo var nú ekki og ég þurfti að leita að bílastæði, greinilegt að jólaösin er byrjuð með stæl og ég á tvær jólagjafir eftir!

Ummæli