Við löguðum til í herberginu hans Kristófers Óla í dag. Færðum stóru hilluna hans og settum upp nýja vegghillu. Ætlunin er svo að fara í Ikea og kaupa fleiri vegghillur. Létum loksins nýja bílateppið á gólfið hjá honum sem hann fékk í afmælisgjöf því nú var miklu betra pláss fyrir það. Hann var voða ánægður með nýja teppið, bílakarlinn sjálfur. Svo sá hann sá hann gamla teppið frammi á gangi áður en við vorum búinn að ganga frá því og var skíthræddur um að við myndum taka nýja teppið og láta gamla teppið í staðinn.
Nú er betra pláss fyrir meira dót hjá honum, ekki seinna vænna enda jólin handan við hornið.
Nú er betra pláss fyrir meira dót hjá honum, ekki seinna vænna enda jólin handan við hornið.
Ummæli