Fara í aðalinnihald

Krónikan 2008


Rakst á þetta myndband. Reyndi að koma því á netið um áramótin og svo aftur í mars en hélt að það hefði ekki tekist þar sem það var allof stórt í MB. Það virðist þó hafa tekist þannig að ég læt þetta núna inná síðuna, aðallega fyrir mig og þá sem nenna að horfa á þetta. Þetta er frekar langt og hljóðið ekki uppá marga fiska en þetta var uppáhaldslag sonarins 2008 (NB ekki uppáhalds lagið mitt) og auðvitað er þetta myndband algjört meistaraverk.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vá en flott myndband, mikið vildi ég eiga svona mikið af skemmtilegum myndum af mínu fólki. Þú átt vonandi fleiri svona, þetta verður frábært í ellinni!
Bergrún
Nafnlaus sagði…
heyrðu, Lilja og aðrar frænkur sem lesa þetta, hvað segið þið um að við frænkurnar hittumst núna í vikunni, veit er lítill fyrirvari, en var að hugsa um að það myndi vera mjög gaman í ljósi þessa að Gróa og Margrét eru á landinu og það gerist nú ekki oft :) jana
Nafnlaus sagði…
Ég kemst því miður ekki, er eitthvað voða busy núna. En þú getur prófað að senda póst á frænkurnar!

LBK

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...