Ég las eina bók um jólin. Sú bók var reyndar 500 blaðsíður en hún var bara svo góð að ég þorði ekki að lesa fleiri þó svo að nóg væri af bókaúrvalinu á þessu heimili, aldrei þessu vant. Ég var og er í raun ennþá viss um að engar bækur standast samanburðinn við þessa bók. Ef ykkur finnst gaman að lesa góða krimma, þá mæli ég með bókinni "Karlar sem hata konur". Svolítið furðulegt nafn á sakamálabók og bókin fjallar alls ekki um þetta eða hvað?
Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.
Ummæli