Fara í aðalinnihald
Uss suuss suss
Mín ekki búin að vera sú duglegasta að skrifa uppá síðkastið. Eins gott að ég er bara með einn dyggan lesanda að síðunni. Maður er bara búin að vera að jólastússast svo mikið uppá síðkastið að maður nennir nú ekki að hanga á netinu daginn út og daginn inn. Ég hef verið að skreyta heima á Holtsgötunni og svo hef ég verið að föndra jólakort með Sigurborgu frænku. Einnig hef ég kíkt smá í búðir og eytt nokkrum þúsundkörlum og ég veit ekki hvað og hvað. Við Siggi fórum svo á myndina Love Actually um síðustu helgi með Ingólfi og Ingu. Gaman, gaman!!! Meira að segja svo gaman að ég fór bara og keypti geisladiskinn úr myndinni í gær.

Í gær fórum við Siggi svo í jólaljósabíltúr þar sem ég setti á mig jólahúfuna, við létum jóladisk í geislaspilarann og svo kíktum við á öll jólaljósin sem íbúar Reykjavíkur hafa verið að keppast við að setja upp heima hjá sér. Er maður ekki bara kominn í jólaskap!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...