Fór í leikhús á sunnudagskvöldið á stórskrítið leikrit. Það var þó betra en á horfðist í fyrstu. Sé þó að ég veit ekki alveg hvernig á að fatta svona menningarleg leikrit. Mér fannst nú samt gaman að drífa mig í leikhús með skemmtilegum félagsskap, sé að maður þarf að fara oftar.
Einnig komst ég að því stóri salurinn í Þjóðleikhúsinu er ekki eins stór og þegar ég var lítil. Fyrir einhverja ótrúlega tilviljun held ég að ég hafi síðast séð leikrit í þessum sal þegar ég fór á Dýrin í Hálsaskógi fyrir um 30 árum, man a.m.k. ekki eftir öðrum leikritum í þessum sal. Reyndar komst ég einnig að þessum sal var gjörbreytt við lagfæringarnar á Þjóðleikhúsinu hérna um árið eins og frægt er orðið, það gæti verið ástæðan fyrir því að ég man ekki eftir neinum leikritum í þessum sal.

Ummæli