Fara í aðalinnihald

Sjö árum seinna

Sjö árum seinna nánast uppá dag rakst ég á þetta blog. Það hefur mátt muna sinn fífil fegri en mér þykur nú alltaf notalegt að kíkja hingað.

Ég á ennþá tvo stráka og sá eldri er orðinn unglingur eða að verða 14 ára í haust og sá yngri nýroðinn 8 ára og heldur að hann sé líka unglingur.

Ég er loksins búin að skipta um vinnu. Hætti í fyrra starfinu eftir 13 ára farsælt starf er núna búin að vinna 2 ár á nýja staðnum og líkar vel.

Við vorum að kaupa okkur íbúð og fluttum núna í maí en höfðum búið í 13 ár í hinni íbúðinni uppá dag. Fengum hana afhenta 20. maí 2005 og afhentum hana til nýrra eiganda 20. maí 2018. Við keyptum okkur reyndar líka nýjan, gamlan bíl núna eftir áramót. Hinn bílinn höfðum við átt síðan 2009. Við höfum þetta ekki flókið. Keyptum bílinn af frænku minni og keyptum íbúð í sama stigagangi, bara ská fyrir ofan. Já, ég hef ekki verið þekkt fyrir að taka áhættur.

Spurning hvort að það líði 7 ár þangað til ég læt eitthvað inn hérna aftur, kemur í ljós.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Á bílnum í vinnuna

Siggi hjólaði í vinnuna í dag í fyrsta skipti þetta árið. Í staðinn fékk ég að fara á bílnum í vinnuna og nýtti ég mér tækifærið og svaf aðeins lengur, en mætti þó í vinnuna 20 mínútum yfir átta. Oh, það var næs. Hinsvegar er verið að yfirfara holræsin í götunni minni og ekkert vatn í allan dag frá kl. 7:45 og fram á kvöld. Þegar ég var að fara á bílnum í vinnuna voru því einhverjir vinnubílar að skoða holræsin og ég eiginlega föst inní götunni. Það endaði með því að ég gerðist lögbrjótur og keyrði þar sem ég má ekki keyra, segi ekki meir ef löggan les reglulega síðuna! Í gær fór ég í vikulegan göngutúr með Sigurborgu frænku og í þetta skiptið kom Hulda frænka með okkur. Við löbbuðum um laugardalinn og hverfið þar í kring, í yndislegu vorveðri. Svona á lífið að vera.

Gleðilegt sumar

Já, þá er sumarið víst komið og tja jafnvel farið þetta árið. í gær var sumardagurinn fyrsti og aldrei man ég eftir að það haf verið janf gott verður á sumardagin fyrsta og í gær, algjör bongóblíða. Ingólfur bróðir átti afmæli í gær, 22. apríl, þannig að við fórum í smá kaffiboð til hans og Ingu og fengum þessa fínu súkkulaðitertu með jarðaberjum og rjóma, namm, namm og takk fyrir mig. En við stóðum í stórræðum í gær, þó aðallega Siggi en ég sá um að stjórna. Siggi málaði nefnilega stofuna hjá okkur. Reyndar náði hann bara að mála þrjá veggi en þá kláraðist málingin. Að sjálfsögðu er núna miklu bjartara og fallegra inní litlu stofunni okkar og við skiljum bara ekki af hverju við vorum ekki búin að gera þetta miklu fyrr. Við héldum svo uppá sumarið með því að skella okkur á “stælinn” (þýðing: American Style) um kvöldið. Ekki leiðinlegur dagur það. Í dag er svo hálfgerður mánudagur en í raun er föstudagur. Mjög svo skemmtilegt því á morgun er nefnilega komin helgi aftur. Mætt...