Fara í aðalinnihald

Föðursystir og eyrnabólga

Fyrst ætla ég að óska bróður mínum og kærustunni hans innilega til hamingju með litla strákinn sinn. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður verður föðursystir en það gerðist 11. febrúar síðast liðinn. Ég er búinn að hitta nýjasta fjölskyldumeðliminn og hann er algjör dúlla eins og vera ber. Hann er pinkulítill en það er nú bara við því að búast þar sem hann kom mánuð fyrir tímann. Móður og barni heilsast vel og það er blússandi hamingja í fjölskyldunni.

Af mér og mínum nánustu er helst að frétta að sonurinn er búinn að ná sér í eyrnabólgu með tilheyrandi verkjum og háum hita, í annað skiptið á einum og hálfum mánuði. Hann er því aftur kominn á sýklalyf og ég er núna heima með hann á mánudegi en hann er búinn að vera inni frá því á fimmtudaginn en við ætlum að reyna að senda hann til dagmömmunnar á morgun. Hann er nú ekkert voðalega sáttur við að vera svona lengi inni. Áðan ætlaði ég að vera voða góð við hann og leyfa honum að koma með mér niður og sækja fréttablaðið. Hann var voða ánægður að koma með mér niður en þegar komið var að póstkassanum þá vildi minn maður lengra, alla leiðina út og ég þurfti að halda á honum öskrandi upp stigann og inn aftur. Greyið langaði svo út enda finnst honum ekkert skemmtilegra þessa dagana en að labba sjálfur úti og kanna heiminn.

Jæja, þetta var nóg í dag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...