Þetta var skrítinn dagur. Vaknaði í morgun með gífurlegan hausverk en dreif mig þó á fætur.
Fór í morgun í Smáralindina og svo í klippingu. En hausverkurinn bara magnaðist þannig að ég lagði mig þegar ég kom heim og svaf alveg fram að kvöldmat. Sem betur fer líður mér betur núna.
Ég sem ætlaði að njóta þess að það væri vor í lofti og gera eitthvað skemmtilegt úti, eins og göngutúr eða fjöruferð. Það bíður betri tíma enda er ég nokkuð viss um að vorið sé handan við hornið.
Einkasonurinn er núna að byrja að horfa á venjulegar bíómyndir og því gaman að geta horft saman á góðar krakkamyndir og átt ánægjulega kvöldstund. Í kvöld því var kósíkvöld þar sem ég og einkasonurinn horfðum á spennandi bíómynd. Að þessu sinni varð fyrir valinu Kapteinn krókur og að sjálfsögðu skemmtum við okkur vel bæði tvö á meðan heimilisfaðirinn sofnaði, en hann fékk auðvitað ekki að sofa í dag.
Ummæli