Aldrei þessu vant var mér boðið í bíó í kvöld. Maður slær ekki hendinni á móti ókeypis bíóferð og myndin kom nokkuð á óvart en ég skemmti mér konunglega. Takk fyrir mig, Gunnhildur.
Fór í kraftgöngu í gær með nýjasta gönguhópnum. Eftir gönguna kom frænka mín aðeins í heimsókn og við fórum að skipuleggja. Ég fann símanúmerin en frænka mín sat sveitt við símann og hringdi í öll systkyni mæðra okkar. Við fengum vilyrði hjá nánast öllum systkynum mæðra okkar (NB þau eru 15 stk.) um að mæta í myndatöku sunnudaginn 27. apríl. Síðasta myndataka af systkynahópnum var fyrir rúmlega 25 árum þannig að það er kominn tími til að fá nýja mynd upp á arininn hjá sér eða uppá vegg fyrir þá sem ekki eiga arinn.

Ummæli