Ég sé um að kaupa ávexti í vinnuni þennan mánuðinn en sú nýbreytin var tekinn upp í haust að kaupa ávaxtakörfu einu sinni í viku sem starfsmenn geta hámað í sig. Starfsmenn taka svo að sér að fylla ávaxtakörfurnar einn mánuð í senn. Við erum kannski ekki eins dugleg og Danirnir en þetta er ágætis nýbreytni og vegur vel uppá móti öllu því sælgæti sem flæðir inn á kaffistofuna. Eins og á svo mörgum vinnustöðum er það líka til siðs að kaupa sælgæti handa kaffistofunni þegar farið er til útlanda.
Á morgun ætla ég að fara í Hagkaup og kaupa fullt af ávöxtum og kannski prófa einhvern nýjan og skrítinn ávöxt.
Á morgun ætla ég að fara í Hagkaup og kaupa fullt af ávöxtum og kannski prófa einhvern nýjan og skrítinn ávöxt.
Ummæli