Fara í aðalinnihald

Ráðstefna

Fór á ráðstefnu í gær í vinnunni um GIS sem var mjög áhugaverð og skemmtileg. Var reyndar bara fram að hádegi, seinni part dagsins var varið í að hugsa um veikan strák.
Skrítið en skemmtilegt þegar maður hittir einhvern sem maður hefur ekki hitt lengi. Hitti eina sem var með mér í landafræði og hef eiginlega ekki hitt síðan. Það var gaman að spjalla við hana en maður hefur takmarkað að tala um þegar maður hittist á nærri tíu ára fresti. Eina ráðið er kannski að hitta þetta fólk oftar.

Ummæli

Skonsa sagði…
Takk fyrir afmæliskveðjuna um daginn :) Af því þetta er svo lítill heimur (eða land...) þá sé ég hérna á síðunni þinni að þú þekkir allavega eina konu sem ég er að vinna með. Er nefnilega að vinna með nokkrum landfræðingum ;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Tölvumál

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni en það er nú líka bara skemmtilegt. Maður gerir þó ekki mikið á meðan en fara í vinnuna og heim aftur, a.m.k. í þessu ásigkomulagi. Komin 30 vikur núna um helgina og 10-12 vikur eftir og ég ekki byrjuð á neinu til að undir búa komu lille baby! Mig langar í nýja tölvu. Okkar tölva er að verða 5 ára gömul og gengur frekar hægt. Þarf að ýta 10x á R á lyklaborðinu til að fá hann fram og stafurinn er dottin af. Það er nú ekki svo sjaldan sem maður notar rrrrrr. Væri betra ef það væri Z. En ég var að spá í hvort að maður ætti að skipta yfir í Macintosh tölvu! http://epli.is/vorur/fartolvur/macbook/ eða bara halda áfram að skrifa sem minnst á tölvuna og láta sig hafa það að bíða og bíða á meðan maður er á netinu. En ég er að verða brjáluð á þessu rrrrrrrrrrrrrr veseni.