Fara í aðalinnihald

Nýr sófi

Í dag var ætlunin að klára að mála stofuna þannig að hún passaði við nýja sófan, já ég sagði nýja sófann. Við erum loksins búin að fá nýjan sófa sem hægt er að sitja í en ekki bara liggja og þar sem ég á svo frábæran pabba sem er húsgagnabólstrari þá þurfti ég ekki að borga neitt fyrir hann. Það eru nú ekki allir eins heppnir og ég.

En það er nú saga að segja frá því hvernig við fengum nýjan sófa. Við vorum nú búin að ræða við pabba að okkur langaði í nýjan sófa, búin að velja áklæði sem var keypt um áramótin en ekkert bólaði á sófanum. Já málið var nefnilega það að á föstudaginn kom ég heim eftir vinnu í mínu mesta sakleysi en dauðbrá þegar ég kom inn. Það var búið að færa kommóðun sem er á ganginum og það fyrsta sem Lilju taugaveikluðu datt í hug var náttúrulega að það hefðu komið einhverjir þjófar og stolið frá okkur. Ég leit inní stofu og það var eitthvað breytt þannig að ég var næstum því viss um að einhverjir óboðnir gestir hefðu komið inn til okkar. Jú víst voru það gestir en ekki óboðnir. Þegar ég leit aftur inn í stofuna bara svona til að vera viss um hvað ég hefði séð, þá sá ég að það var kominn nýr og flottur sófi í staðinn fyrir þann gamla. Pabbi og Siggi höfðu þá komið með sófann og tekið gamla sófann. Búið var að setja nýja sófann saman og allt. Ég vissi ekkert af þessu enda kom þetta mér skemmtilega á óvart sem var auðvitað ætlunin. Ég var heldur betur ánægð með þetta og hef verið að prófa að sitja í nýja sófanum á mismunandi stöðum alla helgina.

En til að klára söguna þá var ekkert málað í dag. Við sáfum bara til kl 12.00 aldrei þessu vant (vöknuðum reyndar í morgun kl. 8.30 en tókst að sofna aftur eftir klukkutíma, já maður þarf að hafa fyrir því að sofa út) fórum svo bara í Kringluna aldrei þessu vant og í Intersport og svo í mat til tengdó. Ekkert málað þessa helgna.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Tölvumál

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni en það er nú líka bara skemmtilegt. Maður gerir þó ekki mikið á meðan en fara í vinnuna og heim aftur, a.m.k. í þessu ásigkomulagi. Komin 30 vikur núna um helgina og 10-12 vikur eftir og ég ekki byrjuð á neinu til að undir búa komu lille baby! Mig langar í nýja tölvu. Okkar tölva er að verða 5 ára gömul og gengur frekar hægt. Þarf að ýta 10x á R á lyklaborðinu til að fá hann fram og stafurinn er dottin af. Það er nú ekki svo sjaldan sem maður notar rrrrrr. Væri betra ef það væri Z. En ég var að spá í hvort að maður ætti að skipta yfir í Macintosh tölvu! http://epli.is/vorur/fartolvur/macbook/ eða bara halda áfram að skrifa sem minnst á tölvuna og láta sig hafa það að bíða og bíða á meðan maður er á netinu. En ég er að verða brjáluð á þessu rrrrrrrrrrrrrr veseni.