Fara í aðalinnihald

Helgarfléttan - enn og aftur

Hef nú ekkert skrifað fyrr en fyrir helgi þannig að ég verð bara að sameina þetta allt saman í einni helgarfléttu.

Haldið þið ekki bara að ég hafi tekið mér frí í vinnunni á föstudaginn. Fyrsti sumarfrísdagurinn minn þetta árið. Já, það var svo erfitt að koma aftur í vinnuna eftir allt páskafríið að ég varð bara að fá mér einn frídag. En það var sko kærkomin frídagur. Ég svaf út og svo fór ég til mömmu og pabba og dró mömmu með mér í Smáralindina en eftir tvo tíma þá vorum við orðnar drulluþreyttar þannig að við fórum bara heim aftur. Ég var svo bara heima hjá mömmu og pabba þangað til Siggi var búinn í vinnunni og þá fór ég og sótti hann og við Siggi fórum í Bónus í Hafnarfirði ásamt öllum hinum Hafnfirðingunum og einnig þeim sem búa á Álftanesi (hitti nefnilega eina sem er að vinna með mér og hún býr sko á Álftanesinu). Það var sem sagt margt um manninn í Bónus og eftir þá ferð þá fórum við aftur í Hörgatúnið og í þetta skiptið skelltum við í okkur pizzu með mömmu, pabba og Ingólfi. Eftir það drifum við okkur svo í Grænahjallan og hittum þar systkyni hans Sigga og horðum á American Idol með þeim. Loks drifum við okkur heim, þreytt eftir viðburðaríkan dag.

Í gær, laugardag, var Siggi líka að vinna og ég var bara að dúlla mér hérna heima. Um kvöldið komu Svo Nína Brá og Sibbi í mat til okkar og við kjöftuðum heilmikið og það var mjög gaman. Siggi kokkur sá um matinn en á boðstólnum voru sveppir fylltir með beikon og rjómaosti í forrétt, Svinalundir með fyllingu (sveppum, hvítlauk, sólþurrkuðum tómötum og basilku) í aðalrétt og ís með heitri berjasósu í eftirétt. Namm, namm.

Í dag fórum við í Ikea, og heimsóknir til ömmu og afa hans Sigga, Hörgatúnið og Grænahjallan. Foreldrar Sigga voru að koma frá Florida og ég græddi þessa fínu sumartösku og bodyspray. Siggi fékk tvo boli og brúnt M&M.

Já, þetta var helgarfléttan í þetta skiptið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Tölvumál

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni en það er nú líka bara skemmtilegt. Maður gerir þó ekki mikið á meðan en fara í vinnuna og heim aftur, a.m.k. í þessu ásigkomulagi. Komin 30 vikur núna um helgina og 10-12 vikur eftir og ég ekki byrjuð á neinu til að undir búa komu lille baby! Mig langar í nýja tölvu. Okkar tölva er að verða 5 ára gömul og gengur frekar hægt. Þarf að ýta 10x á R á lyklaborðinu til að fá hann fram og stafurinn er dottin af. Það er nú ekki svo sjaldan sem maður notar rrrrrr. Væri betra ef það væri Z. En ég var að spá í hvort að maður ætti að skipta yfir í Macintosh tölvu! http://epli.is/vorur/fartolvur/macbook/ eða bara halda áfram að skrifa sem minnst á tölvuna og láta sig hafa það að bíða og bíða á meðan maður er á netinu. En ég er að verða brjáluð á þessu rrrrrrrrrrrrrr veseni.