Fara í aðalinnihald

Svaðilför upp í sveit

Þurfti bara aðeins að setjast við tölvuna til að ná mér niður en ég var að koma úr Grafarvoginum og hélt bara að ég yrði úti enda kyngdi niður snjó á meðan ég var þar í heimsókn. Þegar ég kom út var "risastór" skafl við hliðina á bílnum og ekkert gekk að sópa og skafa snjó af bílnum þar sem allt einu fór að blása og ég sá eiginlega ekki neitt. Ég tók til við að skafa allan bílinn en þegar því var lokið lá við að ég þyrfti að byrja uppá nýtt. Ég sá fram á að ég yrði föst einhverstaðar uppi í sveit (þ.e. í Grafarvoginum) í alla nótt. Mér tókst svo að komast út úr bílastæðinu en þá blöstu við mér blá lögguljós og var viss um að það væri bara búið að loka öllum götum vegna óveðurs. Loks beygði ég út úr botnlanganum og þá sá ég að löggan var bara að stoppa einhvern ungling og það var hið besta veður og enda komst ég fljótt og auðveldlega heim í Kópavoginn. Heimferðin var kannski ekki eins svakaleg og á horfði í fyrstu.

Ekki misskilja mig, mér finnst snjórinn og frostið voða kósí og miklu skemmtilegra að hafa svona fallegan snjó heldur en rigningu, rok og dimmt allan daginn. Verst hvað ég er mikil kerling þegar kemur að því að keyra í snjónum. Jæja, best að drífa sig í háttinn, föstudagur á morgun!!! og svo helgi.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég var í svipuðu ævintýri í gær, á sumardekkjum lengst upp í Mosfellsdal, skautaði svo um alla borgina til að keyra stúlkukindurnar sem voru með í för heim. Ævintýr :-)

Bergrún
Nafnlaus sagði…
æji, þú hefir átt að koma aftur inn og fá húfu og vettlinga og hjálp frá mér (ég á sko nefnilega svona ófærðarúlpu;)). en gott að heyra að komst heim heil á höldnu.
jana

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Tölvumál

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni en það er nú líka bara skemmtilegt. Maður gerir þó ekki mikið á meðan en fara í vinnuna og heim aftur, a.m.k. í þessu ásigkomulagi. Komin 30 vikur núna um helgina og 10-12 vikur eftir og ég ekki byrjuð á neinu til að undir búa komu lille baby! Mig langar í nýja tölvu. Okkar tölva er að verða 5 ára gömul og gengur frekar hægt. Þarf að ýta 10x á R á lyklaborðinu til að fá hann fram og stafurinn er dottin af. Það er nú ekki svo sjaldan sem maður notar rrrrrr. Væri betra ef það væri Z. En ég var að spá í hvort að maður ætti að skipta yfir í Macintosh tölvu! http://epli.is/vorur/fartolvur/macbook/ eða bara halda áfram að skrifa sem minnst á tölvuna og láta sig hafa það að bíða og bíða á meðan maður er á netinu. En ég er að verða brjáluð á þessu rrrrrrrrrrrrrr veseni.