Fara í aðalinnihald

Lilja er...

Lilja er veik
Lilja er náttla bara yndisleg manneskja í húð og hár
Lilja er búin að vera löt!!
Lilja er núna komin í hóp krakka sem eru flestir eldri en hún, eru löngu dottnir út úr skóla og vinna ekkert
Lilja er tíður gestur á spjallþráðum femin.is
Lilja er fædd Í Reykjavík 4. apríl 2000
Lilja er buin ad vera vinkona min fra tvi i leikskola og hun er rosa godur vinur
Lilja er nemandi á öðru ári í Menntaskólanum að Laugarvatni á nátttúrufræðibraut
Lilja er fædd þann 15. ágúst 1966
Lilja er búin að fatta að ef það kemur matur í munninn er ekkert sem segir að hún þurfi að kyngja honum
Lilja er búinn að vera lasin alla helgina og er ekki allshress með það
Lilja er húsgagnasmiður
Lilja er ekki við
Lilja er margfaldur Íslandsmeistari
Lilja er hjúkrunarfræðingur
Lilja er fyrsta íslenska ljóskan sem sérhæfir sig í forritun og eðlisfræði og hennar mottó er: "Kynlíf er eins og eðlisfræði
Lilja er ekki ýtna týpan skal ég segja þér, hún er ljúf og þægileg í framkomu
Lilja er soddan hözlari, hennar kostur er að hún kann að sofa í tjaldi og er mjög flink við það
Lilja er ljóshærð stelpa sem á heima á Leifsgötu
Lilja er reið
Lilja er í einari dupultari svart/hvítari húgvu við pink kanti [færeyska]
Lilja er einnig bifvélavirki í frítíma sínum en hún á forlátan Daihatsu Charade sem stundum þarf eitthvað að ditta að
Lilja er ekki skráð á námskeið
Lilja er skemmtileg oftast :/ hún er stundum pirrandi og er frekar sérstök en annars bara allt í lagi
Lilja er að fara til Kanarí á morgun og kemur ekki aftur fyrr en einhverntímann í mars (æj greyið hún!!
Lilja er traust og glettin og gantast flesta við, Hlær hún hvellt og ákaflega að Austmeyja sið
Lilja er bestasta vinkona mín og er mjög sérstakt samband á milli okkar. Við höfum gengið í gegnum margt súrt og sætt saman
Lilja er svo líka rakinn femínisti

Sá þessa hugmynd á heimasíðu um daginn og ákvað samt að stela henni og prófa þetta. Maður fer bara á Google og skrifar "Lilja er" og það eru ótrúlegustu hlutir sem koma úr því. Það sem er skrifað hérna fyrir ofan er aðeins brot af því sem kom fram í leit á Google.
Það er ótrúlegt hvað maður er fjölhæfur...heheheheh...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Tölvumál

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni en það er nú líka bara skemmtilegt. Maður gerir þó ekki mikið á meðan en fara í vinnuna og heim aftur, a.m.k. í þessu ásigkomulagi. Komin 30 vikur núna um helgina og 10-12 vikur eftir og ég ekki byrjuð á neinu til að undir búa komu lille baby! Mig langar í nýja tölvu. Okkar tölva er að verða 5 ára gömul og gengur frekar hægt. Þarf að ýta 10x á R á lyklaborðinu til að fá hann fram og stafurinn er dottin af. Það er nú ekki svo sjaldan sem maður notar rrrrrr. Væri betra ef það væri Z. En ég var að spá í hvort að maður ætti að skipta yfir í Macintosh tölvu! http://epli.is/vorur/fartolvur/macbook/ eða bara halda áfram að skrifa sem minnst á tölvuna og láta sig hafa það að bíða og bíða á meðan maður er á netinu. En ég er að verða brjáluð á þessu rrrrrrrrrrrrrr veseni.